Spurt og svarað
Hér að neðan má finna svör við algengum spurningum.
Ef þú ert nýr viðskiptavinur þá þarftu að byrja á því að sækja um aðgang. Eingöngu fyrirtæki geta verslað.
Umsókn um aðgang að vefverslun <---- VANTAR LINK
Umsóknin er fyllt út og send. Í kjölfarið færðu staðfestingarpóst með netfangi og lykilorði. EF þú ert þegar viðskiptavinur smellirðu á lásinn hægra megin í horninu og skráir þig inn.
Allar vörur eru afhentar af lagernum á Korputorgi og eru eru afhentar sólarhring eftir kaup (utan sérstakra álagsdaga).
Stærri netpantanir er hægt að fá sendar með sendibíl á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni eru stærri netpantanir sendar með Flytjanda á þá starfsstöð Flytjanda sem er næst póstnúmeri kaupanda.
Smærri netpantanir er hægt að fá sendar með Póstinum.
Smávörur eru sendar með Póstinum út á land, heim, á pósthús eða í póstbox. Sendingarleiðir hvers svæðis fara eftir dreifikerfi, þjónustu og starfsstöðvum Póstsins. Þú getur kynnt þér þína valmöguleika á heimasíðu Póstsins hér.
Húsgögn eru send með Flytjanda og afhent á starfsstöð þeirra sem næst er póstnúmeri kaupanda.
Sendingar eru alltaf sendar frá Reykjavík, hvort sem er frá lagernum okkar eða verslun.
Á heimasíðunni má sjá lagerstöðu undir „Er varan fáanleg í verslun nálægt þér?“
Grænt √ sýnir hvar vara er fáanleg (rautt X sýnir hið gagnstæða).
Húsgögn eru seld af lager þannig ef húsgagn er til á lager okkar að Korputorgi er hægt að versla hana í vefverslun. Ef húsgagn er ekki til í vefverslun (á lager) en er sýnd í verslunum er þar um sýningareintak að ræða. Hægt er að kanna í viðkomandi verslun hvort hægt sé að panta vöruna. Húsgögn eru ekki seld úr verslunum nema í undantekningartilfellum (þá t.d. vara sem hættir).
Smávörur/gjafavörur seljast úr verslun og er því grænt √ til merkis um hvar er hægt að kaupa hana.
Ef vara er sýnileg í vefverslun en er merkt með X í öllum verslunum og lager er hún uppseld en annað hvort væntanleg aftur eða hægt er að sérpanta hana hjá sölufólki í verslunum.
Já, oft á það við. Margir þeirra framleiðenda sem við verslum við bjóða upp á ýmsar útfærslur af húsgögnum – þ.e.a.s. aðrar en þær sem við eigum á lager. Athugið einnig að í nokkrum tilfellum eru vörur eingöngu til sýnis á heimasíðu okkar og eru alltaf afgreiddar sem sérpantanir.
Allar sérpantanir og upplýsingar um þær fara í gegnum sölufulltrúa okkar.
Hægt er að hafa samband hér.
Tilkynningar um galla, ábyrgðarmál eða viðgerðarbeiðnir skal senda á sala@gerheildverslun.is
Til að flýta fyrir afgreiðslu skal taka fram nafn og kennitölu fyrirtækis sem notuð var við kaup og mynd af galla/skemmd þegar við á (ef hægt er).
Ef þú hyggst skila vöru sem þú hefur keypt skaltu hafa samband við sala@gerheildverslun.is
Já, hægt er að greiða með korti eða sækja um reikningsviðskipti
Mánu - Fös • 09:00 – 17:00
Laugardaga • Lokað
Sunnudaga • Lokað
Mán - Fös • 11:00 – 18:00
Laugardaga • 13:00 – 17:00
Sunnudaga • Lokað
GER Heildverslun
Opið alla virka daga 9 - 17
Bíldshöfði 20, 110 Reykjavík
Vörulager Korputorgi
Mánudaga og föstudaga: 11 - 18
Laugardaga: 12 - 16
Aðgengi á afturhluta Korputorgs
Blikastaðavegur 2- 8, 112 Reykjavík